29.04.2009 16:55:24 / einarsig
Margt taka menn sér fyrir hendur og vilja sumir hafa gaman af. Til þess geta verið miklu fleiri leiðir en blasa við í fljótu bragði.
Er nokkuð fráleitt að spenna á sig vængi hugarflugsins, taka tilhlaup fram af fagurblárri fjallsbrún og svífa vængjum þöndum? 
»
28.04.2009 21:59:25 / einarsig
Í gærkvöldi skrapp ég í Kærleikssetrið og sat með andakt grunnnámskeið í taroti. Í kvöld vígði ég svo frekar nýmóðins spil til að spá í. Stokkaði drykklanga stund og er ekki frá því að spilin mín séu bara nokkuð vísdómsleg. Til vonar og vara gæti þó verið sniðugt að sofa með þau undir koddanum nokkrum sinnum. Það er víst gamalkunnugt bragð.
Seiðandi að finna nornareðlið rumska í undirvitundinni! Er ekki bara vel við hæfi að laða fram slíkt nú um stundir, mitt í öllu umrótinu?
»
26.04.2009 19:13:12 / einarsig

Nú er komið á daginn að Fjallkonan reyndist nógu hugprúð til að geta endurfæðst eins og fönixinn.
Flokkarnir á vinstrivængnum, Vinstri græn og Samfylking, eru í fyrsta sinn komnir með hreinan meirihluta (51,5 prósent) og þurfa ekki lengur að reiða sig á Framsókn. Til að bæta um betur fékk byltingarafl búsáhaldanna, Borgarahreyfingin, fjögur þingsæti (7,2 prósent). Sjálfstæðisflokkurinn fékk sína háðulegustu útreið fyrr og síðar (23,7 prósent) og Framsókn sína næstherfilegustu, endurheimti aðeins helming af því sem hún mátti sjá af 2007 (3,1 af 6 prósentum). Frjálslyndi flokkurinn hvarf síðan af Alþingi í heilu lagi.
Hver veit nema tilvalið sé að fara sjálfur að dæmi fönixins í von um farsæla endurfæðingu? Þá þarf víst að breyta til. Ætli fleiri séu til í það?
»
25.04.2009 08:41:35 / einarsig
Í fornum sögnum Austurlanda eru kynlegir kvistir á hverju strái en fáir fórnfúsari en fönixinn. Þegar sá merkisfugl finnur lífsmagnið fjara út gerir hann sér hreiður úr skraufþurrum mirrusprotum, sest þar gneypur og ber eld að. Þar deyr hann drottni sínum en upp úr öskunni rís annar fönix, gæddur andans þrótti og eldsins móði. Ætli sagan af fönixinum eigi erindi við íslenskt samfélag?
Fjallkonan fríð er nú þrotin að lífskröftum enda grátt leikin eftir langvinnan hrunadans. Veislustjóri var Sjálfstæðisflokkurinn, lengst af með maddömu Framsókn upp á arminn. Undir þeirra handleiðslu fengu útgerðarmenn að veðsetja og selja syndandi fisk í sjó og fáeinir kaupahéðnar að hremma banka Íslands. Um leið gat margur lukkuriddarinn seilst eftir fúlgum fjár, lagst í víking og rakað saman góssi. En mikill vildi meira og tók um síðir upp á sjónhverfingum í von um að geta kríað út meira skotsilfur. Synd er að segja að regluverk eða eftirlit hafi fælt frá enda hvort tveggja brennimarkað frjálshyggjunni í bak og fyrir. Véfréttir sjálfhverfra banka voru síðan látnar um að rýna í ókomna tíð enda Þjóðhagsstofnun aflögð.
Að skrautlegum skýjaborgunum sótti brátt uggvænlegur kólgubakki en margt villti sýn, til dæmis hillingar af skuldsettri Kárahnjúkavirkjun, tröllauknu álveri, 90 prósenta húsnæðislánum og flötum skattalækkunum. Þær tálsýnir dugðu Sjálfstæðisflokknum til að halda stjórnarráðinu eftir kosningar 2007. Þar var þess beðið með andakt að frjálshyggjan bjargaði bönkum Íslands en allt kom fyrir ekki. Í hendur Fjallkonunnar var pandóruaskjan löngu komin og fauk upp í nöprum haustnæðingi 2008. Upp úr þeirri örmu öskju hefur síðan sprottið hver bölvunin af annarri en á botninum hvílir vonin ein.
Nú er runnin upp eldraunar stund í sögu Fjallkonunnar. Ætli hugprýðin sé nægileg til að brenna upp hið feiga og örmagna til að hleypa að öðru og ferskara, líkt og fönixinn gerir? Ekki verður það ef Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fá aftur brautargengi til að deila og drottna. Svo mikið er víst.
Birtist á kosningavef mbl.is ásamt öðrum greinum „með og á móti“
»
22.04.2009 07:28:40 / einarsig

Skák getur verið mjög misjöfn eftir því hvort hún snýr að lífi eða leik.
Í skák skiptir mestu að hafa frumkvæðið en ekki endilega í lífsins skák. Þar getur frumkvæðið gengið manna á millum eftir hjartans lyst, allt eftir tækifærinu.
Á sumum bæjum verður því bara alúðlega tekið að aðrir taki frumkvæði ef þeim sýnist svo ...
»
21.04.2009 12:45:50 / einarsig

Stundum er vel við hæfi að lofa öðrum að orna sér við glaðan eld, sérstaklega þeim sem mönnum er hlýtt til og mikið mæðir á þá stundina ...
»
21.04.2009 10:29:26 / einarsig
Það getur verið snúið að fanga augnablikið á ljósmynd en í mínum augum heilla „spontant“ fyrirsætur langmest. Stöku mynd getur þá tekist með endemum vel og allt í einu gengið í endurnýjun lífdaga, jafnvel svo listavel að upphaflegt samhengi fellur í skuggann og hverfur nánast sjónum. 
»
19.04.2009 23:38:55 / einarsig
Þá er æsileg og örlagaþrungin vika fram undan enda ræðst senn hvernig eldgömlu Ísafold reiðir af um langan aldur.
Í kosningunum 2007 fengu Framsókn og Sjálfstæðisflokkur 32 þingmenn af 63 með 48,3% atkvæða. Þeirra liðsmönnum þarf að fækka 25. apríl, ella fær Fjallkonan ekki endurfæðst.
Sjaldan líflegra að vera til en í hulduhrútslegri kosningarimmu!
»
19.04.2009 22:47:03 / einarsig
Sumir eru svo ljónheppnir að upp að þeim læðist ljósengill með blys á lofti. Í flöktandi bjarmanum má skyggnast fram á veg og jafnvel eygja rósum skrýdda kafla handan holta og hæða, dala og draga ef Guð og gæfan lofar.
Leiftursýnir úr ókominni tíð ná víst furðumargar fram að ganga, hver sem aðdrag- andinn kann að verða.
»
16.04.2009 17:09:36 / einarsig
Í dag þverneitar Íhaldið að hleypa í gegn stjórnarskrárákvæði um að þjóðin skuli eiga auðlindir móður náttúru. Nú lætur það gamminn geisa um meinleysislegt frumvarp að sjúkraskrárlögum. Hvers vegna? Jú, næst á dagskrá eru skyndilega komin tvö þjóðþrifamál: bann við nektarsýningum og bann við vændiskaupum!!
Stjórnarliðar eru víst ekki húmorslausir! 
»
15.04.2009 11:59:38 / einarsig
Sem sveitapjakkur var ég fíkinn í fréttir. Á heimilinu var Tíminn lesinn, síðar Nútíminn og NT og um skeið Helgarpósturinn. Oft vaktaði ég póstinn. Um leið og hann renndi í hlað sentist ég út eftir blöðunum, áfjáður í að meðtaka sem fyrst fréttir líðandi stundar.
Alltaf hafði ég samúð með lítilmagnanum, ekki síst þegar fyrir sjónir bar eþíópsk börn með úttútnaðan kvið. Lítið spáði ég í flokkadrætti en fældist ævinlega Íhaldið enda oft borin illa sagan í málgagni maddömunnar. Í alþingiskosningum hlaut Framsókn fyrst náð fyrir mínum augum en á sokkabandsárum R-listans hreifst ég með og hallaði mér æ meir að vinstriöflunum.
Árið 1999 fór ég að fylgjast með pólitísku orðaskaki af miklum móð. Til að byrja með jókst umburðarlyndið gagnvart flestum eða öllum flokkum en smám saman rann þó æ ljósar upp fyrir mér að stefna og framganga Sjálfstæðisflokksins væri af allt öðrum meiði en hinna og mér lítt að skapi. Það er ekkert persónulegt. Flokkar eru bara flokkar.
Í júní 2004 var ég fenginn til að rita pistla á Pólitík.is. Allar götur síðan hafa slík skrif verið spök fylgja. Aðra læt ég um að sinna stjórnmálunum og treysti þar ýmsum. Ekki örgrannt um að hjartað slái með þeim sumum ...
»
14.04.2009 08:55:45 / einarsig
Nú er karlinn kátur!
Loksins hefur eignarhaldsfélagið Greenstone náð samningum við bandarískt stórfyrirtæki um að byggja upp gagnaver á Íslandi. Stefnan er sú að framkvæmdir hefjist á árinu og fyrstu verin verði tekin í notkun í janúar 2011. Búist er við að þeim fjölgi eftir það og árið 2014 verði heildarorkuþörfin orðin um 300 megavött.
Eitt sér þarf 360 þúsund tonna álver í Helguvík 625 megavött en framkvæmdir liggja niðri. Spurning hvort Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, ætli sér að kría út orku á undirmálsverði og selja hana síðan til gagnavistunar. Ekki væri það hagstætt fyrir þjóðarbúið!
Þá er affarasælla að ekki verði af álveri í Helguvík enda lítið svigrúm til að virkja næstu árin meðan Landsvirkjun og fleiri orkufyrirtæki eru skuldum vafin. Metanól- framleiðsla, sólarkísilframleiðsla og kaplagerð þurfa sína orku og vonandi fyrirtæki í öðrum vistvænum iðnaði. Eftir 2012 sneyðist svo sennilega um losunarheimildir koltvísýrings og þá verður kostur álveranna enn þrengri.
Hver veit nema nú fari að rofa til?
»
13.04.2009 10:39:51 / einarsig

Stundum snareykst innri þörf á að sýna lit, sérstaklega ef aðrir hafa sýnt gott fordæmi með litfagurri fórnarlund og umburðarlyndi ...
»
12.04.2009 20:15:37 / einarsig

Sumir reyna að leita samhljóms í móður náttúru. Margt getur þar heillað, til dæmis strendurnar en líka orkuríkir staðir á borð við Snæfellsjökul.
Vappaði ofan í Elliðaárdal í dag. Dásamlegt að spígspora þar um stíga í blíðskapar- veðri eldsnemma eða síðla dags og líta hvítfextar straumrastirnar í ánum.
Ætli dalurinn verði ekki enn undursamlegri þegar trén taka að grænka?
»
10.04.2009 21:23:47 / einarsig
Er að fylgjast með Aldrei fór ég suður á wms.vodafone.is. Aldrei fór ég vestur en stemningin virðist lífleg og notaleg!
Auðvitað kemur tónlistarhátíð eftir þessa en væri ekki gaman að bregða undir sig betri fætinum ef kostur væri?
»
Síður:
1 2