Um heima og geima

27.06.2007 23:09:43 / einarsig

Líður að landsmóti!

Farinn að telja niður í landsmót UMFÍ í Kópavogi. Stafsetningin kallar!

Landsmótið á Sauðárkróki 2004 var æði, ekki síst fyrir menningarferðir um bæinn. Ekkert jafnast þó á við Laugarvatn 94: Man tjaldballið með Hljómum eins og það hafi verið í gær! Missti af Egilsstöðum 2001 og iðrast enn sáran.

Ekki er að efa að ungmennafélagsandinn verður í hávegum hafður árið 2007!


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 18:50:00 / einarsig

Ekki er öll nótt úti!

Nú er Landsvirkjun, ríkið í ríkinu, staðráðin í að beisla neðri hluta Þjórsár ―í innantómri von um stundargróða.

Um tíma var engu líkara en hreppsnefnd Flóa ætlaði að láta glepjast af gylliboðum og gýligjöfum en nú virðist grasrótin komin hálfa leið með að varpa Urriðafossvirkjun út í ystu myrkur ―nema sveitarstjórnin daufheyrist við kurrinu í umbjóðendum sínum. Það væri nú eftir öðru!

Hver veit nema mammon sé farinn að hopa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 15:55:48 / einarsig

Á Esjunni

Á Jónsmessunótt lá leiðin upp á Esjuna með Ferðafélagi Íslands.

Áður en lagt var upp flutti Árni Björnsson þjóðháttafræðingur erindi um forna Jónsmessusiði og sýndir voru þjóðdansar. Andi liðinnar tíðar sveif yfir vötnum, seiðandi í annarleika sínum. Síðan var haldið upp að Þverfellshorni. Eftir heila eilífð var komið að hamrabeltunum. Kærði mig þá ekki um að halda upp á toppinn enda orðið napurt í háloftunum. Brennunni og álfadansinum var því fórnað en í staðinn skreiðst á bak við stein, nestið snætt og ofanför hafin.

Í visku minni freistaði ég þess að stytta mér leið niður en það reyndist þá vera einstigi um snarbrattar brekkur. Í þokkabót þyrlaðist upp mold í vindhviðunum og fyllti öll vit. Eftir langa mæðu nam ég staðar, settist lémagna á þveran stíginn, eins og slytti fyrir hunda og manna fótum, og hugsaði ráð mitt. Aðrir vegfarendur voru litlu hetjulegri nema vera skyldi hind ein ―eða fjallageit ―sem hljóp við fót um krákustíga og þverhnípisbarma. En ekki var um annað að ræða en harka af sér og þegar neðar dró beið veðurblíðan í allri sinni dýrð.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 12:40:24 / einarsig

Bláminn

Blátt er litur heilunar og hlýju.

Engin furða að fjarlægðin gerir fjöllin blá og blámóðan sveipar liðna tíð dýrðarljóma.

Af líkamshlutum geta aðeins augun verið blá það er synd.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 22:07:56 / einarsig

Aðdráttaraflið

Oft er útsýnið aðlaðandi, ekki aðeins þegar horft er úr upphæðum heldur líka þegar horft er af jafnsléttu.

Ögranir eru æsandi þegar viljinn er góður, hvort sem það er aðför að gnípum Esjunnar á Jónsmessunótt eða aðrar aðfarir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 01:42:33 / einarsig

Að finna sér tíma

Ef fólki þykir vænt hvoru um annað gæti verið góð hugmynd að mæla sér oftar mót.

Af hverju gerir fólk ekki meira að því að skreppa saman í lautarferð eða labbitúr, til dæmis upp í Heiðmörk, Þórsmörk eða á Þingvelli, eða ganga saman á fjöll og firnindi, jafnvel Esjuna? Spila? Eða bregða sér saman á kaffihús, lista- eða leiksýningar, í bíó eða skemmtigarða, í pílukast, keilu eða biljarð?

Ekki fráleitt að reyna stöku sinnum að láta sér líða vel saman, jafnvel bara með því að þegja saman. Stundum þarf ekki meira til ...


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 17:31:15 / einarsig

Milli línanna

Þetta var prýðileg þjóðhátíðarræða hjá Geir Haarde í dag. Má lesa milli línanna að nú sé að renna upp fyrir honum að kvótakerfið hefur brugðist, ekki síst þegar litið er til sjávarbyggða landsins.

Forystumenn í stjórnmálum eru svo orðvarir ef viðurkenna þarf að flokksstefnan hafi ekki reynst sem skyldi.

Batnandi mönnum er best að lifa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 12:56:19 / einarsig

Enn einu sinni til jarðar ...

Þegar fólk er orðið fullorðið skiptir ekki sköpum að það eigi samleið um allt um lífsreynslu eða annað. Ef rétt er að sálirnar endurholdgist, eins og gert er ráð fyrir í búddisma og hindúisma, hljóta þær að vera misgamlar. Þá getur aldur sálnanna dregið þær hvora að annarri enda haft á orði að góðir félagar hafi þekkst í fyrra lífi.
 
En þetta eru nú bara vangaveltur ...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 18:53:29 / einarsig

Hugurinn að baki

Á ýmsu veltur hvort menn eru kröfuharðari við aðra eða sjálfa sig. Furðuoft er það þó á þann veginn að kröfurnar séu minni til sjálfs sín en annarra. Eins gott að það sé ekki þannig í mínu tilviki því að oft dugir góðviljuð viðleitni til að gleðja mig ... ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 20:04:59 / einarsig

Eden í bakgarðinum

Nú hef ég fundið óbrigðult heilsubótarráð: morgun- eða jafnvel kvöldgöngu í Elliðaárdal. Unun að ramba þar um í sólríkri friðsæld og draga í sig angan af móður náttúru í fullum skrúða.

Skrítið að hafa ekki litið fyrr út í bakgarðinn. Ekki að spyrja að hugsunarleysinu!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 16:45:54 / einarsig

Hvað táknar nafnið?

Smelltu á tengilinn, sláðu inn skírnarnafnið þitt eða -nöfnin og vittu hvort þú kannast við lýsinguna:

Number Quest


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 11:43:10 / einarsig

Að hika ...

Stundum geta menn verið svolítið óframfærnir og er þá undirritaður síst undanskilinn. Kann hins vegar vel við ófeimið fólk og ekki sakar að það sé litskrúðugt, hvort heldur í útliti eða háttum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 20:48:51 / einarsig

Víkingarnir okkar

Sólstöðuhátíð víkinga í Hafnarfirði fangar hugann enda snýst doktorsritgerðin um norræna goðafræði: Freyju, Heimdall, Loka, Vani, Æsi og annað slíkt lið.

Víkingarnir eru oft vanmetnir sem siðlausir vígamenn en auðvitað hugsuðu þeir sitt og áttu sér menningu.

Nú á dögum sækja norrænir víkingar fram á erlendri grund en ekki með eldi og járni heldur viðskiptaviti og veraldarauði.

Ekkert er nýtt undir sólinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 21:35:31 / einarsig

Hleðslan

Sól skín í heiði. Fór út að rölta áðan í strekkingnum.

Dulspekingar segja að fæðist menn í stormi eða jafnvel slagviðrihugsi þeir stífar en aðrir vegna þess að þá fái þeir ólgandi hugarorku í vöggugjöf. Ekki ætla ég að selja það dýrar en ég keypti það.

Hitt er víst að eftir gönguferðina áðan er ég hlaðinn orku!


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 13:45:12 / einarsig

Strákarnir okkar!

Nú hefur Gummi Björn tengt sig á frétt á mbl.is um leikinn gegn Liechtenstein (www.gbe.blog.is). Ekki fer okkar maður fögrum orðum um framgönguna frekar en stundum áður, vill nú helst af öllu leggja niður landsliðið og spara skattfé.

En ekki eru nú mörg ár síðan karlalandsliðið vann Ítali, lagði Spánverja og gerði jafntefli við þáverandi heimsmeistara, Frakka. Öll él birtir upp um síðir, annars verður okkar maður bara að gerast klappstýra hjá kvennalandsliðinu. ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 167943
Leitarbox

Dagatal
RSS tengill