Um heima og geima

27.01.2012 15:58:29 / einarsig

Sálar yndi

Stundum er engu líkara en sumt fæði lyfti sálinni meir en annað. Eðaldæmi um nokkuð sem gleður mitt sálartetur eru ber: Jarðarber, bláber, krækiber, vínber, hindber ... Tala nú ekki um þegar rjómi fylgir! ;) Enga tertu fæ ég betri en jarðarberjatertu að hætti móður minnar. Svo mikið er víst!

Sjálfur spái ég meira í hvað fæði gerir fyrir sál en líkama. Hef velt yfir því vöngum hvers vegna ber ganga svo vel ofan í mitt sálarkerald en tæpast leyst þá ráðgátu. ;) Raunsæið vill leita hefðbundinna skýringa en ímyndunaraflið háfleygari skýringa. Sjálfur hef ég alla tíð verið mömmustrákur. Kannski sálarhróið skynji bara eitthvað móðurlegt við ber af móður jörð? Hver veit?


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 16:49:48 / einarsig

Fram um veg

Oft auðnast mönnum að rata fram veginn. Ekki er að efa að þá verður hálfu hægara að finna visku og hugprýði, atorku og útsjónarsemi.

Sumir dá snerpu, aðrir seiglu. Eflaust er misjafnt eftir efnum og ástæðum hvort er vænlegra til árangurs hverju sinni.

En hefst ekki allt með þrautseigjunni? Er það ekki aðal allra góðra hetjusagna?


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2012 18:50:37 / einarsig

Litprýði himins

Þá er að baki skammdegisför á slóðir Snæfellsjökuls. Á bakaleið í bæinn var ekið undir stjörnubjörtum himni. Brátt blasti við nokkuð sjaldséð: Langa leið þvert yfir himin- hvolfið teygði sig grænleit glitblæja og á nokkrum stöðum við sjóndeildarhringinn glitti í eldrauðan bjarma. Grænleitu ljósin voru norðurljós, kannski þau rauðleitu líka.
 
Undursamleg sjón!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2012 08:50:19 / einarsig

Smekklegur samanburður!

Enski boltinn ‒ eitt af því sem ég hef fallið fyrir. Enskt spaug ‒ annað sem ég hef fallið fyrir. Get ekki að því gert þótt ekki vilji ég nú gera upp á milli þjóða.

Þarf ekki annað en að bera saman Manchester United og Real Madrid eða Notting Hill og Idioterne! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 11:57:28 / einarsig

Til skila

Sumir eru hjartfólgnari en aðrir. Oft reynir maður að senda þeim hlýjandi ljós þótt ekki séu þeir í grenndinni Hver veit nema slíkt komist til skila?


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2012 14:29:36 / einarsig

Með hækkandi sól

Dýrðardagur: Hvít jörð en lognstillt veður.

Hvít jól eru yndið mitt en frostgaddur og snjómugga hafa þó lengi varnað mér eins: þess að skreppa upp að Snæfellsjökli.

Undir Jökli má sækja sér orkuflæði til orða og athafna.

Styttist í orkuleiðangur! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 18:56:17 / einarsig

Gráni græni!

Bíll með sál er dásamlegur farkostur. Gleymi aldrei Grána mínum svo lengi sem ég lifi. Gráni minn var Nissan Datsun Stanza, léttur og nettur. Frá honum streymdi góð orka, hvert sem leið lá.

Gráni gamli gekk fyrir bensíni, eins og alsiða var í þá daga, en hefði nú eflaust verið ginnkeyptur fyrir grænni orku, blessaður, þekki ég hann rétt. Rafmagn, vetni, metan Gráni minn hefði komist hvert á land sem var! 

Þegar farkosturinn er sáluþrunginn er allt hægt, líka að bruna á undan sól og mána í aftureldingu dags! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2012 16:10:10 / einarsig

Vonarstjarna

Nú er karl kominn í sveitina. Árla dags lá leiðin út í fjós. Þar varð ég glaður við bón móður minnar um að gefa kálfunum. Ekki breytast þeir, blessaðir.

Einn var sýnu yngstur, borinn í morgunsárið. Sá er rauður með hvíta stjörnu á enni, undurfagra. Óðar flaug mér nafn í hug. Morgunstjarna skal kálfsi heita ef mín hug- detta nær fram að ganga. Ekki veit ég hvort kálfanafnanefnd í Stykkishólmi veitir blessun sína. ;) Í slíkum nafngiftum eru jú Unnur systir og Steini mágur margvís og margreynd.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 15:41:03 / einarsig

Jólaseiður







Nú eru eftirjólin hjá mér: Öll sígildu jólalögin!

Jólabarnið í mér skríkir af tilhlökkun. Ekki seinna vænna: Það er farið að styttast í næstu jól! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2012 15:38:43 / einarsig

Flím og fagurleiki

Á spjöld bókmenntasögunnar hafa margir komist en fáir orðið nafnkunnari en don Kíkóti frá Mancha. Það er upphaf að sögu don Kíkóta að hann hefur lesið riddarasögur af miklum móð og leggur sjálfur upp til að halda uppi merkjum riddaramennskunnar. Ekki er að sökum að spyrja: Á horuðum húðarklár, Rósinant, ratar don Kíkóti í margvísleg ævintýri. Kátlegar hliðar á karl sér en reynir að beita sér fyrir hinu göfuga og réttláta. Mitt í afrekum sem ofraunum á yndiskvendi eitt hjarta don Kíkóta. Aldonza Lorenzo heitir dísin réttu nafni en af skáldlegu hjartnæmi kallar riddarinn hugumstóri hana Dúlsíneu frá Toboso

Löngum hefur don Kíkóti verið hafður að háði og spotti en sumum eflaust sést yfir eitt: Don Kíkóti er hjartahreinn.

Er slíkt ekki flestu fegurra?


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2012 01:14:49 / einarsig

Tvennt í einu

Oft er mikið lagt upp úr andstæðum enda má víða finna þær rammar. Ætli sunna og máni séu ekki afbragðsdæmi um andstæður? Ef rýnt er í himinhvolfið má skynja  eða ímynda sér  að sólin sé þrungin krafti og framtakssemi en máninn kynngi og tilfinninganæmi. Má jafnvel mikið vera ef sólin er ekki nægtasöm og lagslynd en tunglið nægjusamt og hlédrægt. ;) Þá er engu líkara en sólin sé úthverf en máninn innhverfur.

Víst er að sitt sýnist hverjum. Undir sól og mána er seiðandi að vera en ætli ljósaskipti dags og nætur heilli mig ekki jafnvel enn meir? Þá renna sól og máni saman. Þá verður tvennt eitt.
 
Er ekki yndislegt að leita jafnvægis?


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2011 14:01:38 / einarsig

Sálarfar

Forðum fékk ég til umráða gráan Nissan Datsun Stanza, léttan og nettan. Gráni minn var bifreið með sál! Síðan hefur alla tíð heillað að sitja í sáluþrungnum farkosti. Það hefur ekki breyst hætis hót.

Hafa ekki sumir lag á að sitja í léttu og nettu sálarfari, hvert sem för er heitið?

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2011 23:08:33 / einarsig

Í góðum félagsskap!

Sögusagnir herma að sir Walter Raleigh hafi fyrstur látið setja niður kartöflur í Evrópu. Það var á Írlandi. Næstu aldirnar áttu kartöflurnar eftir að bjarga Írum.

Forðum daga í sveitinni heima var ég ötull að bera hænunum kartöflur. Daginn út og daginn inn hrundu þær af borðum húsbændanna. Sjálfur gerði ég mitt til að nóg yrði afgangs! En nú er af sem áður var: Nú heillar grænt og gott! Nú bjarga kartöflurnar mér í hátíðamatnum heima mitt í lamba-, hangi- og svínakjötinu.

Jólarétturinn í ár: Kartöflur! Kroppa þær með hænunum heima. ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2011 00:06:42 / einarsig

Vatnsburður

Forðum daga var gerður gosbrunnur í garðinum heima. Þá var ég gutti en fenginn til að mála brunninn ljósbláan. Í miðjan brunninn kom stytta. 

Á aðfangadag varð mér litið út í garðinn heima. Þá sá ég allt í einu brunninn og styttuna í spánnýju ljósi: Í brunninum miðjum stendur drengur og reiðir ker á hægri öxl. 

Ætli margur geti ekki fundið uppsprettulind í garði löngu liðinnar bernsku og borið þaðan vatn eftir því sem kostur er? ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2011 23:56:50 / einarsig

Jólakveðja



Gleðileg jól! 


              Einar 

  

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 97
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
Gamalt blogg
Leitarbox

Dagatal